Jæja, þú ert nú búinn að setja upp hið fullkomna þema en það er annað hvort gjörólíkt sýnidæminu eða að þú vilt alls ekki að það líkist því. Sum þemu eru einmitt mjög flókin og krefjast mikillar yfirlegu svo að tilætlað útlit náist. Það er ekki alltaf betra að hafa þemað flókið en ef þú ert byrjaður að nota eitt þannig get ég aðlagað það fyrir þig svo að það eina sem þú þurfir að gera er að dæla inn efni.